sunnudagur, 29. nóvember 2020
Með samráði við Heilbrigðiseftirlitið innkallar IMF ehf. í Vatnagörðum mexíkóska kjúklíngasúpu, eins lítra, sem merkt er Krónunni. Ástæða innköllunar er aðskotahlutur (glerbrot) sem fannst.
- Vörumerki: Krónan.
- Vöruheiti: Mexíkósk kjúklingasúpa.
- Geymsluþol: Engin geymsluþolsmerking ☐ Best fyrir ☒ Best fyrir lok ☐ Síðasti notkunardagur ☐ Dagsetning: 06.03.2021.
- Framleiðsludagur: 06.11.2020.
- Strikamerki: 5694311800470.
- Nettómagn: 1 lítri.
- Geymsluskilyrði: Á ekki við:☐ Kælivara:☒ Frystivara:☐
- Framleiðandi: IMF ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík.
- Framleiðsluland: Ísland.
- Dreifing er hjá verslunum Krónunnar.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar veitir IMF ehf., imfehf@imfehf.is